18
Apr/09
0

Lýðræðishreyfingin er stærsti stjórnmálaflokkur landsins!

Samkvæmt nýrri skoðunarkönnun Hvíta riddarans mælist Lýðræðishreyfingin með 32,5% fylgi á landsvísu. Þetta er nokkur breyting frá síðustu könnun Gallup en þar mældist hreyfingin með 0,03% fylgi.

Í könnuninni kemur fram að núverandi ríkisstjórn er fallin en Samfylkingin fær aðeins 13,7% og Vinstri Grænir 19,5%.

Færustu stjórnmálasérfræðingar vilja meina að þarna sé að mestu að þakka að vefdeild RÚV hefur sett inn tengil á vef Lýðræðishreyfingarinnar á kosningavef sinn en nafni minn hann Ástþór Magnússon hefur barist fyrir þessu síðustu daga meðal annars í útvarpsviðtölum á RÚV.

Ítarlegri fréttaskýringu um málið er hægt að nálgast á vef Lýðræðishreyfingarinnar.

Comments (0) Trackbacks (0)

No comments yet.

Leave a comment

No trackbacks yet.