Mar/090
Þökkum Símanum fyrir stuðninginn!
Ég er að horfa á landsöfnun Hjartaheilla sem er í beinni útsendingu á Stöð 2. Þetta er vissulega hið best mál og ég mæli með að allir skelli smá féi þarna inn. Ég ákvað að styrkja þetta málefni og hringdi í 903 númer sem er auglýst og flestir nota líklega en þá kom í ljós að fyrir hvert símtal tekur Síminn litlar 78 krónur í þjónustugjald. Það er sossem ekki mikið mál að bæta við 78 krónum í viðbót og ég lét þetta ekkert á mig fá og kláraði málið og ég geri ráð fyrir að fólk hafi engar sérstakar áhyggjur af þessu gjaldi.
Við viljum auðvitað ekki að Síminn þurfi að taka á sig högg fyrir söfnunina enda sitja starfsmenn Símans væntanlega kófsveittir núna fyrir framan skjáinn að taka á móti framlögum og reikna út þannig að 78 krónunum er vel varið!
Nú hafa safnast yfir 20 milljónir. Ef við miðum við að ca. 7.000 manns hafi hringt í 903 númerið og gefið framlag (sem er skot í loftið) þá er Síminn að hala inn rúmum 500 þús á þjónustugjöldum. Er það ekki sjálfsagt að Síminn hafi eitthvað upp úr þessari Landsöfnun?
Í lokin ætla ég að leggja til að Síminn millifæri allt þjónustugjald sem hefur verið innheimt á reikning Hjartaheilla og leggja þannig söfnuninni lið enda skiptir það félagið engu máli og gjaldtakan er ekki við hæfi!
UPDATE:
Síminn gaf þjónustugjöldin í sjóðin þannig að allir eru sáttir!